Fiskiroð og söðlasmíði, Berti Möller og hundavinir episode artwork

EPISODE · Mar 6, 2024 · 50 MIN

Fiskiroð og söðlasmíði, Berti Möller og hundavinir

from Mannlegi þátturinn

Arndís Jóhannsdóttir lærði söðlasmíði í London og vann við söðlasmíði og í dag hefur hún unnið margs konar vörur, veski, töskur og fleira úr flestum tegundum fiskroðs sem hún hefur sýnt á hátíðum og sýningum víða í Evrópu. Við fræddumst um roð og söðla með Arndísi í dag en hún heldur erindi í kvöld ásamt Katrínu Þorvaldsdóttur, sem hefur unnið lengi með þang og þara, í Sjóminjasafninu í Grandagarði. Af og til kemur Jónatan Garðarsson í heimsókn til okkar og segir okkur frá gömlum dægurlagaperlum eða flytjendum. Jónatan er eins og uppflettirit í sögu íslenskrar dægurtónlistar og í dag fengum við hann til að tala aðeins um Berta Möller. Berti Möller var einn af ástsælustu söngvurum rokkáranna á Íslandi en hann söng með fjölmörgum sveitum á ferli sínum, sú þekktasta var Lúdó sextett. Bertram Henry Möller, skírður Bertam Henry Mallet, fæddist 1947 í Reykjavík en þar ólst hann upp í Vesturbænum. Vinaverkefni Rauða krossins eru félagsleg þátttökuverkefni þar sem áherslan er á að sporna við félagslegri einangrun og/eða einmanaleika og eitt af þeim er sjálfboðaliðastarfið Hundavinir. Í næstu viku fer fram grunnmat fyrir hunda og nýja sjálfboðaliða í vinaverkefnið en hlutverk hundavina er því fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju. Sjálfboðaliðinn Þórdís Björg Björgvinsdóttir kom í þáttinn í dag ásamt hundinum Nölu. Tónlist í þættinum: Ókeypis/ Egill Ólafsson og Finnsk-íslenska vetrarbandalagið (Egill Ólafsson og Matti Kallio) Sólbrúnir vangar / Berti Möller (Oddgeir Kristjánsson og Ási í bæ) Pep / Berti Möller og Hljómsveit Svavars Gests (Oliver Guðmundsson og Skapti Sigþórsson) The Doggie in the window / Patti Page (Bob Merrill) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 6, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Fiskiroð og söðlasmíði, Berti Möller og hundavinir

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 6, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!