EPISODE · Apr 9, 2026 · 50 MIN
Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta
from Mannlegi þátturinn
Við fræddumst í dag um rannsókn sem Þóra Katrín Erlendsdóttir, meistaranemi við í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri vann. En tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun ungmenna af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs vinar. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu misst vin í sjálfsvígi. Þóra Katrín var hjá okkur í dag og sagði okkur frá rannsókninni og niðurstöðunum, þar sem til dæmis kom fram mikilvægi formlegs og óformlegs stuðnings. Félagasamtökin Barnadjass standa að hátíðinni Barnadjass í Mosó sem verður haldin í 4. sinn í júní. Þetta er alþjóðleg hátíð þar sem börn á aldrinum 8-16 ára koma fram og spila djass eftir eyranu og spinna. Hátíðin er stofnuð eftir norskri fyrirmynd en listrænn stjórnandi beggja hátíða er Odd André Elveland, norskur djasstónlistarmaður og frumkvöðull í kennslu ungra barna í að spila djass eftir eyranu og spinna. Guðrún Rútsdóttir er formaður félagasamtakanna Barnadjass og hún kom í þáttinn í dag. Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi og stjórnandi Meðvirknipodcastsins kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um mannlegu samskiptin. Í dag hélt Valdimar áfram að tala um höfnunarótta. Tónlist í þættinum í dag: Ráðahagur / Moses Hightower (Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen & Steingrímur Karl Teague)Texti, Andri Ólafsson & Steingrímur Karl Teague) Pain / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson) Það jafnast ekkert á við jazz / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Er það satt sem þau segja um landann / HLH flokkurinn (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.