Föstudagsgestirnir Elín og Katla og uppáhaldsmatur Elvis Presley episode artwork

EPISODE · Sep 20, 2024 · 50 MIN

Föstudagsgestirnir Elín og Katla og uppáhaldsmatur Elvis Presley

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, leik- og tónlistarkonurnar Elín Hall og Katla Njáls. Þær leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni Ljósbrot sem hefur fengið frábærar viðtökur, var frumsýnd á Cannes, hefur verið valin á fjölda virtra kvikmyndahátíða og er í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þær hafa báðar leikið talsvert, bæði á sviði og fyrir framan myndavélarnar, og svo eru þær líka báðar tónlistarkonur og hafa stofnað dúettinn Mammaðín. Við spjölluðum við þær um lífið og tilveruna, leiklistina og tónlistina og reynsluna af því að leika saman í kvikmyndinni Ljósbrot og lífsreynsluna af því að vera á rauða dreglinum og frumsýna hana í Cannes. Í matarspjalli dagsins var Sigurlaug Margrét með áhugaverða matreiðslubók í farteskinu. Það er ekki hægt að segja að hollustan sé í fyrirrúmi í téðri bók, þar sem uppskriftir af uppáhaldsmat eins frægasta tónlistarmanns sögunnar, Elvis Presley, er safnað saman. Tónlist í þættinum: Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) California Dreamin / The Mamas & The Papas (John Phillips & Michelle Phillips) Mammaðín / Frekjukast (Dagný Kristjánsdóttir, Elín Sif Halldórsdóttir, Jóhannes Damian Patreksson, Katla Njálsdóttir og Kristján Jóhann Jónsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 20, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Föstudagsgestirnir Elín og Katla og uppáhaldsmatur Elvis Presley

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 20, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!