EPISODE · Dec 6, 2024 · 50 MIN
Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella og kengúrusteik í matarspjallinu
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í dag voru söngdívurnar og Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella Lárusdóttir. Þær eru báðar á kafi í undirbúningi tónleika og ekki bara Frostrósatónleika heldur eru þær út og suður eins og margt tónlistarfólk þessa daganna. Við ræddum við þær í dag um lífið og tilveruna, Frostrósirnar og vertíðina í desember. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag töluðum við um gamla uppskriftarbæklinga sem fengust gjarnan í verslunum sem innihalda uppskriftir að hátíðarmatnum. Einn bæklinganna innihélt meðal annars uppskriftir að kengúrusteik og hérasteik, sem voru í boði til skamms tíma hér á landi. Tónlist í þættinum: It’s Christmas / Jamie Cullum (Jamie Cullum) Af álfum / Frostrósir - Margrét Eir og Friðrik Ómar (Karl Olgeirsson samdi lag og texta) Friður á Jörð / Frostrósir - Margrét Eir, Dísella og Hera Björk (Lowell Mason, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella og kengúrusteik í matarspjallinu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.