EPISODE · Feb 12, 2026 · 50 MIN
Fuglainflúensa, Ísólfur ögrar sér og kulnun í mannlegum samskiptum
from Mannlegi þátturinn
Nýlega voru staðfest smit af skæðri fuglainflúensu í villtum fuglum hér á landi. Dauðir fuglar sem smit greindust í fundust m.a. við Tjörnina í Reykjavík og við tjörn við Ögurhvarf í Kópavogi, en smit af þessari gerð höfðu þá ekki greinst hér á landi frá sumrinu 2023. Andrea Björk Hannesdóttir dýralæknir hjá Dýrheimum kom í þáttinn og fór til dæmis yfir það hvað fólk á að gera finni það dauða fugla og hvað berast að varast, t.d. varðandi gæludýr sem gætu komist í snertingu við smitaða fugla. Við höfum töluvert rætt þriðja æviskeiðið í þessari viku og í dag fengum við góðan gest sem hefur einsett sér að njóta þessa tímabils eins og hægt er. Hann heitir Ísólfur Gylfi Pálmason og á að baki farsæla starfsævi sem kennari, stjórnmálamaður og fleira - hann neitar að leggjast í kör á efri árum og leggur sig fram við að ögra sér, fara upp úr hjólförunum og prófa nýja hluti. Ísólfur sagði okkur frá sundferðum, hjóla- og tjaldferðum og tónlist sem hann lumaði á og ákvað að fá konuna sína til að syngja og reynda tónlistarmenn til að spila á upptökum sem hann hefur gefið út. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Undanfarna fimmtudaga hefur hann einbeitt sér að mannlegum samskiptum á vinnustöðum og í dag talaði hann um kulnun og hvernig hún getur tengst mannlegum samskiptum. Tónlist í þættinum í dag: Líttu sérhvert sólarlag / Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson (Bragi Valdimar Skúlason) Lítill fugl / Ellý Vilhjálms (Sigfús Halldórsson, texti Örn Arnarson (duln.f. Magnús Stefánsson) Morgunljóð til Margrétar / Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir (Ísólfur Gylfi Pálmason, texti Pálmi Eyjólfsson) Þrjú tonn af sandi / Haukar (Winfield & Blackwell, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Fuglainflúensa, Ísólfur ögrar sér og kulnun í mannlegum samskiptum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.