Fundur um stöðu ungmenna, Ónæmisgallar og Ullarvika episode artwork

EPISODE · Sep 26, 2024 · 50 MIN

Fundur um stöðu ungmenna, Ónæmisgallar og Ullarvika

from Mannlegi þátturinn

Fullt var út úr dyrum á foreldrafundi sem fram fór í Safamýri í fyrradag fyrir foreldra barna í hverfum 104, 105 og 108 þar sem kallað var eftir því að opnunartími félagsmiðstöðva og sundlauga yrði rýmkaður og starf félagsmiðstöðva eflt ásamt foreldrarölti. Ljóst er að foreldrar eru að kalla eftir meiri viðbrögðum í skólakerfinu og víðar til að sporna gegn vaxandi unglingadrykkju og ofbeldi meðal barna. Til okkar komu Arna Hrönn Aradóttir verkefnastjóri í Norðurmiðstöð Reykjavíkurborgar sem sér einnig um forvarnir og lýðheilsumál í hverfinu og Unnar Þór Bjarnason samfélagslögreglumaður en mikið hefur verið rætt um að auka sýnileika þeirra í hverfum borgarinnar. Hvað er ónæmiskerfi, hvernig myndast það og hvernig ver það okkur gegn sýkingum? Í verslunum og apótekum má finna ótal tegundir bætiefna og vítamína sem eiga að bæta ónæmiskerfið, er virkar það? Lind félag fólks með ónæmisgalla / meðfæddan mótefnaskort, blæs til námstefnu um ónæmisgalla á mánudaginn en margt bendir til þess að ónæmisgallar séu vangreindir hér á landi sem annars staðar en rétt meðferð getur stuðlað að heilbrigði og fullri atvinnuþátttöku. Guðlaug María Bjarnadóttir leikkona og kennari formog Hrefna Jónsdóttir Hjúkrunarfræðungur á göngudeid ónæmisfræða, komu til okkar. Núna styttist í Ullarvikuna sem fram fer í þriðja sinn og er undirbúin af 30 konum á Suðurlandi í sjálfboðavinnu. Það má segja að þetta sé vaxandi viðburður og í ár eru um það bil 20 námskeið í boði og þar af 8 uppseld og örfá pláss laus á önnur. Það stefnir í metaðsókn,aðallega íslendingar en nokkrir hópar koma erlendis frá. Helga Thoroddsen var á línunni. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-26 Ríó - Landið fýkur burt. Franklin, Aretha - Solitude. Joel, Billy - Piano man.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 26, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Fundur um stöðu ungmenna, Ónæmisgallar og Ullarvika

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 26, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!