Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu episode artwork

EPISODE · Jun 3, 2026 · 50 MIN

Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu

from Mannlegi þátturinn

Það er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir kennara og nemendur. Námfús er íslensk lausn fyrir leikskóla og grunnskóla sem er notuð bæði á Íslandi og Þýskalandi og unnið er að því að aðlaga lausnina fyrir framhaldsskóla. Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Námfús kom í þáttinn í dag við fengum hann til að útskýra fyrir okkur hvernig þetta virkar og hverjir möguleikarnir eru. Næringarþerapía á rætur að rekja til hugmyndafræði functional medicine, þar sem meginmarkmiðið er að styðja líkamann út frá rót vandans. Við ræddum við Sigríði Róbertsdóttur, eða Siggu Róberts, í þættinum í dag, en hún er næringaþerapisti sem lærði fræðin í Bretlandi. Hún segir að líkaminn hafi ótrúlega getu til að ná jafnvægi þegar hann fær réttan stuðning. Hún talaði meðal annars um það af hverju konur á miðjum aldri eru í meiri hættu á histamínóþoli. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á músum þar sem var í fyrsta skipti skoðað hvernig krabbamein og krabbameinslyf virka mismunandi á mismunandi aldurskeiðum þar sem líkaminn og ónæmiskerfi líkama okkar eru berskjaldaðri á efri árum en þegar við erum ung. Tónlistin í þættinum: Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson) Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson) Heiðlóan / Gísli Magna og Co. (Steingrímur M. Sigfússon) Kötturinn sem gufaði upp / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

NOW PLAYING

Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on June 3, 2026.

What is this episode about?

Það er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir...

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!