Gleði Bjargar, Lalli töframaður og mannleg samskipti með Valdimar episode artwork

EPISODE · Sep 11, 2025 · 50 MIN

Gleði Bjargar, Lalli töframaður og mannleg samskipti með Valdimar

from Mannlegi þátturinn

Listakonan Björg Þórhallsdóttir hefur búið í Noregi nánast allt sitt líf og kom núna til Íslands til þess að kynna nýja bók sem hún skrifaði, Gleði Bjargar - Hamingjan er markmið, gleðin er afstaða. Björg er líka höfundur hinna vinsælu dagbóka Tíminn minn, sem komið hafa út hér á landi í rúman áratug. Hún hefur haslað sér völl í Noregi sem myndlistarmaður og rithöfundur og þessi nýja bók hennar var um tíma í efsta sæti bóksölulista þar í landi. Björg kom í þáttinn í dag, beint af flugvellinum, og með henni kom Hildur Blöndal, þerapisti og ráðgjafi en þær vinna saman sem þerapistar í Noregi. Við fengum svo töfrabrögð í beinni í þættinum í dag. En Lalli töframaður, eða Lárus Blöndal Guðjónsson, kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal Hörpu 20.sept. og verður með sjónhverfingar og töfrabrögð. Sinfóníuhljómsveitin mun spila vinsæl lög úr söngleikjum á borð við Frozen og Mary Poppins. Að auki er að koma út barnabókin Dagur með Lalla, eftir Lalla og hann kom í þáttinn og sagði okkur betur frá bókinni, tónleikunum og töframennskunni. Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins, kom svo til okkar í dag með það sem við köllum Mannleg samskipti, þar sem við skoðum með honum ýmislegt sem viðkemur mannlegum samskiptum og hvað getur haft áhrif á þau og gert þau flókin. Í dag talaði Valdimar um áföll, sem geta verið gríðarlega margvísleg og fjölbreytt, og áhrif þeirra á okkur, til dæmis í samskiptum okkar við annað fólk, ef við fáum ekki hjálp til að takast á við afleiðingar þeirra. Tónlist í þættinum í dag: Allur lurkum laminn / Bjarni Ara (Hilmar Oddsson) Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson (Helgi Svavar Svavarsson og Bragi Valdimar Skúlason) A Woman is a Something Thing / Louis Armstrong (Ira Gershwin and George Gershwin) He Ain’t Heavy He’s My Brother / The Hollies (Bobby Scott & Bobby Russel) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 11, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Gleði Bjargar, Lalli töframaður og mannleg samskipti með Valdimar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 11, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!