Golfsýning í Laugardalshöll, 10CC og Placido Domingo og þrennt sem meðvirkni getur leitt til episode artwork

EPISODE · Mar 5, 2026 · 50 MIN

Golfsýning í Laugardalshöll, 10CC og Placido Domingo og þrennt sem meðvirkni getur leitt til

from Mannlegi þátturinn

Á þessum árstíma eru kylfingar um allt land að verða alveg viðþolslausir að bíða eftir vorinu og að geta farið út á golfvelli landsins að elta litlu hvítu boltana. Reyndar nýta sífellt fleiri kylfingar innanhús aðstæður sem spretta upp út um allt land eins og gorkúlur og um helgina geta kylfingar fengið forsmekkinn af golfsumrinu í Laugardalshöllinni, en þar fer fram stórsýning á því nýjasta sem í boði er sem tengist golfi og útiveru, Golf Expo. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, og Ómar Már Jónsson, sem stendur að sýningunni um helgina, komu í þáttinn í dag. Hljómsveitin 10CC er á leið til Íslands þar sem Graham Gouldman og tónleikaband hans stíga á svið í Eldborgarsal Hörpu. Sveitin hefur áratugum saman skipað sér sess meðal merkustu nafna poppsins og tónlist hennar heldur áfram að höfða til nýrra kynslóða. Graham stofnandi, bassaleikari, gítarleikari og söngvari hefur stýrt 10CC frá upphafi en núverandi skipan byggir á traustum grunni úr sögu sveitarinnar. Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari kom til okkar í dag. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Hann náði ekki að klára í síðustu viku þegar hann var að tala um þær þrjár leiðir sem meðvirkni getur leitt fólk inn á. Við rifjuðum þær upp og hann fór dýpra ofan í þær og hvað er hægt að gera til þess að lenda ekki í öngstræti. Tónlist í þættinum í dag: Lítið ljóð / Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) Lítið lausnarorð / Stefán Hilmarsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Stefán Hilmarsson og Friðrik Erlingsson) The things we do for love / 10cc (Eric Stewart & Graham Gouldman) Get Out Your Lazy Bed / Matt Bianco (Danny White & Mark Reilly) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 5, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Golfsýning í Laugardalshöll, 10CC og Placido Domingo og þrennt sem meðvirkni getur leitt til

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 5, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!