Gömlu eyjalögin, trefjar á Heilsuvaktinni og Kári lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Apr 7, 2026 · 50 MIN

Gömlu eyjalögin, trefjar á Heilsuvaktinni og Kári lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Leifur Geir Hafsteinsson, forsprakki alþýðutónlistarhópsins Vinir og vandamenn og dóttursonur Oddgeirs Kristjánssonar, kíkti í heimsókn til okkar í dag en hópurinn vinnur að gerð hljómplötu þar sem finna má áður óútgefin eða sjaldheyrð gömul Eyjalög. Leifur sagði okkur frá hljómplötunni og lögunum og við heyrðum tvö laganna, þar á meðal Setjumst að sumbli en það er fyrsta Þjóðhátíðarlagið, frá árinu 1933 og hefur aldrei verið gefið út áður og var því frumflutt í útvarpi í Mannlega þættinum í dag. Í Heilsuvakt dagsins kom Helga Arnardóttir til okkar í beina útsendingu og ræddi um prótein æðið sem hefur riðið yfir á samfélagsmiðlum og trefjaæðið sem nú er að taka við. Rannsóknir sýna nefnilega að fæstir ná lágmarksskammti af trefjainntöku á dag en trefjar hafa veruleg góð áhrif á meltinguna og næra bakteríur í þarmaflórunni en ekki bara það því dagleg og góð trefjainntaka getur spornað gegn sykursýki 2, ristilkrabba, hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og alzheimer svo eitthvað sé nefnt. Helga ræddi þetta við okkur á Heilsuvaktinni og fór yfir helstu fæðuflokka sem innihalda góðar trefjar. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Kári Sævarsson einn af eigendum vörumerkjastofunnar Tvist. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Kári talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Smásögur eftir Hauk Ingvarsson (sem eiga að koma út í heildarsafni og ekki enn kominn titill) Tímabundin e. Kristján Hrafn Guðmundsson Alistair McClean og Hammond Innes Fávitinn e. Dostojevski Tónlist í þættinum í dag: Í bíl / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson, ljóð Örn Arnarson) Setjumst að sumbli / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson,texti Árni úr eyjum) And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 7, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Gömlu eyjalögin, trefjar á Heilsuvaktinni og Kári lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 7, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!