Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, sumartónleikar í Skálholti og Sigrún lesandinn episode artwork

EPISODE · Jun 23, 2025 · 50 MIN

Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, sumartónleikar í Skálholti og Sigrún lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Nú er tími útivista og gönguferða, fólkið í landinu reimar á sig gönguskóna og nýtur fegurðar íslenskrar náttúru. Yfirleitt þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna skemmtilegar gönguleiðir, en það getur þó verið erfitt að vita hvar skal byrja og hvar þær er að finna. Jónas Guðmundsson, gönguleiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur hefur varið ótal stundum á fjöllum og á göngu um náttúru landsins og nú hefur hann gefið út nýja bók, Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hann fjallar um 30 gönguleiðir einmitt á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Jónas kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessum leiðum og bókinni. Sumartónleikar í Skálholti hafa verið starfandi frá árinu 1975 og staðið fyrir tónleikahaldi í Skálholtskirkju á hverju sumri síðan. Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærst sinnar tegundar á landinu og einn stærsti menningarviðburður sem fram fer á Suðurlandi yfir sumartímann. Benedikt Kristjánsson söngvari sagði betur frá hátíðinni í þættinum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigrún Blöndal, kennari og deildarstjóri. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigrún sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: Ann Cleves og Shetland seríu hennar og sögupersónunni Veru Stanhope. Lee Child og bækurnar um Jack Reacher Stig Larsson og bækurnar um Lisbeth Salander Det forsömte forår e. Hans Scherfig Fornaldarsögur Norðurlanda Hrólfssaga Kraka Tónlist í þættinum í dag: Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Don’t Stop Me Now / Philharmonix (Freddie Mercury) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 23, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, sumartónleikar í Skálholti og Sigrún lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on June 23, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!