Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið episode artwork

EPISODE · Jun 10, 2026 · 52 MIN

Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið

from Mannlegi þátturinn

Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands, kom í þáttinn og útskýrði fyrir okkur í dag hversu stórt það er að komast inn á þetta mót og hverju það skiptir fyrir Gunnlaug Árna og íslenskt golf. Ný vitundarherferð er í gangi til styrktar Kvennaathvarfinu undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Rúmlega fimm þúsund manns hafa sótt prjónauppskriftina að prjónapeysunni Skjól sem Tinna Laufdal hannaði í samstarfi við Kvennaathvarfið og garn er að seljast upp í verslunum og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður víða um land. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra kom í þáttinn í dag einmitt í einni útgáfu af peysunni Skjól. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið, eins og hún hefur gert á miðvikudögum í vetur. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum á collageni sem fæðubótaefni. Tónlistin í þættinum: Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens) Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

NOW PLAYING

Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið

0:00 52:21

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on June 10, 2026.

What is this episode about?

Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar...

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!