Haraldur Þorleifsson föstudagsgestur og matarspjall um hvítlauk og skonsur episode artwork

EPISODE · Sep 19, 2025 · 53 MIN

Haraldur Þorleifsson föstudagsgestur og matarspjall um hvítlauk og skonsur

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Haraldur Ingi Þorleifsson. Hann stofnaði hönnunarfyrirtækið Ueno árið 2014 í Bandaríkjunum, rekstur þess gekk gríðarlega vel, þau unnu fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum í heiminum og það vakti mikla athygli þegar hann seldi fyrirtækið árið 2021 til Twitter og fjölskyldan flutti aftur til Íslands. Eftir það hefur Haraldur brallað ýmislegt, hann kom af stað og stjórnaði verkefninu Römpum upp Reykjavík, til að auðvelda aðgengi fyrir hjólastóla. Upprunanlega markmiðið var að byggja 100 rampa við fyrirtæki og verslanir í Reykjavík, en að lokum voru þeir orðnir yfir 1750 um allt land og nú hefur hann ýtt úr vör rampaverkefnum í Úkraínu og Panama. Hann minntist móður sinnar, Önnu Jónu, sem lést þegar hann var tíu ára og opnaði veitingastað í hennar nafni, samdi og gaf út eigin tónlist sem Önnu Jónuson. Haraldur er svo að auki með hlaðvarpsþætti, bæði á íslensku og ensku, þar sem hann spjallar við áhugavert fólk og í síðustu viku kom í ljós að hann er búinn að endurvekja Ueno, fyrirtækið sem hann seldi fyrir fjórum árum. Það var um nóg að tala við Harald í dag, við ferðuðumst með honum afturbak og áfram í tíma og rúmi, frá Vesturbænum til New York, Buenos Aires og Tokyo. Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í dag spjölluðum við um hvítlauk og skonsur. Tónlist í þættinum í dag: Ferrari / Ragnheiður Gröndal (Páll Torfi Önundarson) Take Me to Church / Sinéad O’Connor (Kearns & Reynolds) Delirious Love / Neil Diamond (Neil Diamond) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 19, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Haraldur Þorleifsson föstudagsgestur og matarspjall um hvítlauk og skonsur

0:00 53:45

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 53 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 19, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!