Hatursorðæða um hinsegin málefni, pörupiltar með fræðslu í fyrirtækjum og Hrund og Innsæi episode artwork

EPISODE · Nov 4, 2025 · 50 MIN

Hatursorðæða um hinsegin málefni, pörupiltar með fræðslu í fyrirtækjum og Hrund og Innsæi

from Mannlegi þátturinn

Í lok síðustu viku voru kynntar niðurstöður rannsóknar sem bar nafnið Öruggarin hinsegin borgir, sem unnin er af Nordic Safe Cities fyrir Reykjavíkurborg. Þar kemur fram að ein af hverjum tíu athugasemdum um hinsegin málefni á samfélagsmiðlum inniheldur hatursorðræðu. Þar sést allt frá niðrandi athugasemdum til hótana og neteineltis sem getur valdið fólki vanlíðan, dregið fram skaðlegar staðalímyndir og alið á rangfærslum um hinsegin fólk. Reyn Alpha Magnúsdóttir forseti Trans Ísland kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessari rannsókn og fór með okkur yfir upplifun sína og fólks í félaginu Trans Ísland. Við fræddumst svo um nýtt uppistand Pörupilta um EKKO málin; Einelti, kynferðislegt áreiti, kynbundið áreiti og ofbeldi. Pörupiltar eru leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Í uppástandinu fara þær í fyrirtæki og nálgast þessi erfiðu og vandmeðförnu málefni á gamansaman hátt. Uppistandið er hugsað sem tækifæri til að fræða starfsfólk fyrirtækja um EKKO málin í gegnum húmor. Áður hafa Pörupiltar gert Kynfræðslu Pörupilta sem sýnd var fyrir alla 10. bekkinga sjö ár í röð. Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona og pörupiltur kom í þáttinn í dag. Á Heilsuvaktinni ræddi Helga Arnardóttir við Hrund Gunnsteinsdóttur, sem hefur verið sendiherra innsæis um árabil eða allt frá því heimildamynd hennar INNSÆI var birt á Netflix árið 2016 og var sýnd um allan heim. Fyrir nokkru sagði hún upp fastri vinnu sinni og seldi einbýlishús sitt, flutti til Berlínar og skrifaði bókina Innsæi sem hefur komið út á mörgum tungumálum og fengið góðar viðtökur. Hrund er einnig leiðtogaþjálfi og stendur nú fyrir námskeiðum þar sem hún kennir fólki að þekkja innsæið sitt og fylgja því í leik og starfi. Tónlist í þættinum í dag: Við viljum lifa / Ríó Tríó (L. Alberto, texti Helgi Pétursson) Clair / Gilbert O’ Sullivan (Gilbert O’ Sullivan) Way home / Blood Harmony (Örn Eldjárn) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 4, 2025

Embed this episode

Ready to play

Hatursorðæða um hinsegin málefni, pörupiltar með fræðslu í fyrirtækjum og Hrund og Innsæi

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on November 4, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!