Heilsuvera og 1700, viðbrögð við Covid, Sigríður Lára Gunnlaugsd. episode artwork

EPISODE · Apr 17, 2024 · 50 MIN

Heilsuvera og 1700, viðbrögð við Covid, Sigríður Lára Gunnlaugsd.

from Mannlegi þátturinn

Við töluðum í síðustu viku við Sigríði Dóru Magnúsdóttur, forstjóra Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars um álag og langa bið hjá heilsugæslunni. Hún talaði um að oft sé ekki nauðsyn að koma á heilsugæsluna, heldur geti fólk leitað fyrst á heilsuvera.is, bæði í netspjallið og þær upplýsingar sem þar eru, nú eða jafnvel að hringja í 1700 ef erindið er brýnt. En það er ekki víst að allir viti hvernig það gengur fyrir sig og hvernig er best að snúa sér í sambandi við það. Ingibjörg Rós Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er einmitt rétta manneskjan til að svara þeim spurningum og hún kom til okkar í dag. Á morgun fer fram opin málstofa í viðskiptadeild Háskólans á Akureyri. Þar mun Grétar Þór Eyþórsson deildarforseti Viðskiptadeildar tala um viðbrögð við Covid 19 faraldrinum á Íslandi: Tilviksrannsókn frá sveitastjórnarstiginu. Í erindinu greinir Grétar frá fyrstu niðurstöðum sínum úr norrænni rannsókn um stjórnunarlega og skipulagslega þætti sem tengjast viðbrögðum við COVID-19 faraldrinum. Við töluðum við Grétar í dag. Við heyrðum svo í Sigríði Láru Gunnlaugsdóttur, sjúkraþjálfara á Ísafirði. Hún lauk meistaranámi frá Háskólanum á Akureyri í fyrra og í meistaraverkefni hennar rannsakaði hún reynslu heilbrigðisstarfsfólks sem sinnti einstaklingum sem lentu í snjóflóðunum í Súðavík 1995 fyrstu dagana eftir flóðin. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í upplifun heilbrigðisstarfsfólksins og kanna hvort þessi lífsreynsla hafi haft áhrif á þeirra líf og störf. Sigríður sagði okkur betur frá rannsókninni og niðurstöðunum í þættinum. Tónlist í þættinum Ertu viss / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg) Landið fýkur burt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Everybody’s talkin’ / Harry Nilson (Fred Neil) Heim / Magni Ásgeirsson (Magni Ásgeirsson og Ásgrímur Ingi Arngrímsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 17, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Heilsuvera og 1700, viðbrögð við Covid, Sigríður Lára Gunnlaugsd.

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 17, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!