Heimildarmyndin Gróa, Hótel- og matvælaskólinn og póstkort frá Magnúsi episode artwork

EPISODE · Jan 15, 2025 · 50 MIN

Heimildarmyndin Gróa, Hótel- og matvælaskólinn og póstkort frá Magnúsi

from Mannlegi þátturinn

Við fræddumst í dag um lífræna ræktun á Íslandi og lífræna matvælaframleiðslu. Anna María Björnsdóttir tónlistkarkona bjó lengi í Danmörku, þar kynntist hún Jesper sem ólst upp á lífrænum bóndabæ á Jótlandi. Nokkrum árum og börnum síðar fluttu þau til Íslands og Anna fór að kynna sér lífræna ræktun á Íslandi, eða kannski skort á henni og hún fór að reyna að breyta því. Hún hefur nú framleitt heimildarmyndina Gróu, ásamt Tuma Bjarti Valdimarssyni, um lífræna ræktun hér á landi. Þau sögðu okkur frá myndinni og lífrænni ræktun í þættinum. Fyrir um það tveimur árum komu til okkar höfundar nýrrar matreiðslubókar sem gefin var út í tengslum við námið í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Nú er komin út ný útgáfa en bókin er unnin með það að leiðarljósi að efla kennslu og þekkingu nemenda í matreiðslu og styðja við markmið matreiðslubrautarinnar um menntun í matargerð. Þetta er jú eini skólinn sem kennir þessar matvælagreinar á Íslandi og við könnuðum í þættinum stöðuna í skólanum í dag? Er næg aðsókn og hvaða brautir eru vinsælli en aðrar? Við töluðum við einn höfunda bókarinnar og deildarstjóra skólans Hermann Þór Marinósson og framkvæmdastjóra skólans Harald Sæmundsson. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir Magnús frá hugrenningum sínum um paradís, himnaríki eða sumarlandið eins og margir vilja kalla þann stað þar sem framliðnir ástvinir dvelja. Magnús var á ferð í Herjólfi í mikilli brælu og veltingi og paradísin leitaði á hann þegar hann sá aðra farþega þjást af sjóveikinni sem er ólæknanleg á meðan á ferðalaginu stendur. Tónlist í þættinum í dag: Aldrei of seint / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Peaceful Easy Feeling / Eagles (Jack Tempchin) Villtir strengir / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson, texti Loftur Guðmundsson) If Paradise is Half as Nice / Amen corner (Battisti, Mogol & Fichman) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 15, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Heimildarmyndin Gróa, Hótel- og matvælaskólinn og póstkort frá Magnúsi

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 15, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!