Helga og Heilsuvaktin, Sirrý og Lífskraftur og Friðrik og arabískar nætur episode artwork

EPISODE · Sep 9, 2025 · 50 MIN

Helga og Heilsuvaktin, Sirrý og Lífskraftur og Friðrik og arabískar nætur

from Mannlegi þátturinn

Helga Arnardóttir kom til okkar í dag, en hún verður með Heilsuvaktina annan hvern þriðjudag í þættinum, eins og síðasta vetur. Í dag sagði hún okkur frá því sem hún ætlar að fjalla um í haust, til dæmis langvarandi einkenni Covid, þyngdarstjórnunarlyfjum, breytingar á lífstíl til að ná bata eða tökum á sjúkdómum, heilsusamlegt mataræði og hreyfingu, mýtur þegar kemur að heilsu og fleira. Á Íslandi greinast árlega 15-20 konur með leghálskrabbamein og 3-5 deyja árlega vegna þess. Áhrifin eru auðvitað mikil á fjölskyldur, aðstandendur, samfélagið og atvinnulífið og meðferðin kostar gríðarlega mikið. Sirrý Ágústsdóttir er stofnandi Lífskrafts og hefur greinst með leghálskrabbamein tvívegis. Hún kom í þáttinn og sagði okkur frá Lífskrafti, sinni reynslu og markmiðinu að Ísland verði fyrsta þjóðin í heiminum til að útrýma leghálskrabbameini. Við forvitnuðumst svo að lokum um arabíska menningu sem er fagnað með tónlist og dansi í Kramhúsinu þessa vikuna. Friðrik Agni Árnason skipuleggur hátíðina Arabískar Nætur í Reykjavík, ásamt Írisi Stefaníu, þar sem þau vilja sýna þennan fjarræna menningarheim í jákvæðu ljósi. Við heyrðum í Friðrik í dag. Tónlist í þættinum í dag: Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson) In My Life / The Beatles (Lennon & McCartney) Missisippi / Cactus Blossom Men Nazra / Nancy Ajram (Ziad Jamal) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 9, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Helga og Heilsuvaktin, Sirrý og Lífskraftur og Friðrik og arabískar nætur

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 9, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!