EPISODE · Apr 1, 2026 · 50 MIN
Helgi Björns og Ísafjörður, Guðmundur Pétursson og blúshátíð og Edda Olgudóttir
from Mannlegi þátturinn
Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við töluðum við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlistarmaður kom í þáttinn í dag. Blúshátíð í Reykjavík er í gangi yfir páskana eins og undanfarin ár og áratugi. Hátíðin verður í sínum stað á Hilton Reykjavík Nordica og á dagskránni eru bæði erlendar og innlendar blússtjörnur og að lokinni formlegri dagskrá verður Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu umhverfi. Guðmundur Pétursson kom til okkar í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í lok þáttar í sitt reglubundna vísindaspjall. Hún fjallaði um nýjar rannsóknir á rafrettum og níkótíninntöku. Og okkur skildist að þetta hafi ekki verið alslæmar fréttir sem hún færði okkur í dag. Tónlist í þættinum í dag: Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Allt ljómar / Helgi Björnsson Ég trúi á þig / Múgison og Blúskompaníið UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Helgi Björns og Ísafjörður, Guðmundur Pétursson og blúshátíð og Edda Olgudóttir
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.