EPISODE · May 22, 2026 · 52 MIN
Helgi Björns og Ragga Gísla föstudagsgestir og matarspjall um vorilm og fleira
from Mannlegi þátturinn
Það voru tveir föstudagsgestir í dag, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, en þau sameina krafta sína á tónleikum sem þau kalla Helgi & Ragga syngja og spjalla. Búið er að setja á þrenna tónleika, til að byrja með, þar sem þau munu flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar þekkja með þeim og hafa tekið ástfóstri við, auk þess að rifja upp eftirminnileg augnablik úr litríkri vegferð þeirra í tónlist. Þau skipa bæði stóran sess í íslenskri tónlistarsögu sem var gaman að rifja upp með þeim í þættinum og ferðast með þeim í gegnum tímann. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag vildi Sigurlaug ræða lyktina sem fyllir loftið í byggðum landsins á þessum árstíma... og þá var hún ekki að meina ilminn af nýslegnu grasi. Svo rifjuðum við upp fleiri greinar úr Eldhúsbókinni frá sjötta og sjöunda áratugnum sem standast misvel tímans tönn. Tónlistin í þættinum: Lífsgleði / Moses Hightower (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Atli Bollason og Guðmundur Óskar Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
NOW PLAYING
Helgi Björns og Ragga Gísla föstudagsgestir og matarspjall um vorilm og fleira
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 1, 2026 ·22m
Jun 28, 2026 ·50m
Jun 22, 2026 ·65m
Jun 21, 2026 ·50m
Jun 18, 2026 ·60m
Jun 16, 2026 ·89m