EPISODE · Oct 25, 2024 · 50 MIN
Helgi Björnsson föstudagsgestur og vetrarmatur
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn og leikarinn Helgi Björnsson. Hann heldur þessa dagana upp á fjörutíu ár í tónlistarbransanum með tónleikum þar sem hann fer yfir vinsælustu lögin á farsælum ferli, í hljómsveitunum Grafík og Síðan skein sól og á mörgum hljómplötum í eigin nafni. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, en hann er fæddur og uppalinn á Ísafirði, flutti svo suður, lærði leiklist og hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. 40 ár af Helga Björns í þættinum í dag. Á morgun er fyrsti vetrardagur og í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti fórum við yfir það sem hún kallar vetrarmat. Gúllas, kássur og fleira í matarspjallinu í dag. Tónlistin í þættinum Tangó / Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson) Mér var svo kalt / Síðan skein sól (Helgi Björnsson) Himnasmiðurinn / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Þormóður Eiríksson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Helgi Björnsson föstudagsgestur og vetrarmatur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.