EPISODE · May 27, 2026 · 51 MIN
Herferð Amnesty á Íslandi, steraleikarnir og vísindaspjall með Eddu
from Mannlegi þátturinn
Við kynntum okkur nýja herferð Íslandsdeildar Amnesty International sem kallst Mannúðin mun sigra - Virðum réttindi fólks á flótta. Markmið hennar er að mæta ótta og rangfærslum með staðreyndum, mannlegum sögum og samtali sem byggir á samkennd og mannréttindum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá herferðinni. Við kynntum okkur svo umdeilt íþróttamót. Um helgina fór fram viðburður sem er kallaður "Enhanced games“ sem stundum er kallaður „steraleikarnir“ upp á íslensku. Þar var keppt í nokkrum greinum - eins og sundi, spretthlaupi og lyftingum. Og á þessum leikum eru ýmis lyf og efni leyfð sem almennt eru bönnuð í hefðbundnum íþróttakeppnum. Einn íslenskur keppandi tók þátt - og vann, Hafþór Julius Björnsson. Við fræddumst aðeins um þessa keppni og spjölluðum við Jóhann Pál Ástvaldsson íþróttafréttamann. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar með vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn þar sem kannaður var munurinn á virkni heilans þegar við skrifum með blýanti eða penna, sem sagt handskrifum, miðað við það að pikka á lyklaborðin. Tónlistin í þættinum: Kúadelluslamm / Melchior, Elín Jónína Bergljótardóttir (Hilmar Oddsson) Landþvættirnir / Bogomil Font (Rafael De Leon, texti Sigtryggur Baldursson) Gi Mig Hvad Du Har / Dodo and The Dodos (C. Nerenst, texti A. Valbro og S. Christiansen) Reynimelur / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Karl Teague, Magnús Trygvason Eliassen og Daníel Friðrik Böðvarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
NOW PLAYING
Herferð Amnesty á Íslandi, steraleikarnir og vísindaspjall með Eddu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 1, 2026 ·22m
Jun 28, 2026 ·50m
Jun 22, 2026 ·65m
Jun 21, 2026 ·50m
Jun 18, 2026 ·60m
Jun 16, 2026 ·89m