Hildur Björk í Glerárkirkju, systkinaofbeldi og vísindaspjall með Eddu episode artwork

EPISODE · Apr 29, 2026 · 52 MIN

Hildur Björk í Glerárkirkju, systkinaofbeldi og vísindaspjall með Eddu

from Mannlegi þátturinn

Við heimsóttum Glerárkirkju í dag og ræddum við séra Hildi Björk Hörpudóttur og hún sagði okkur frá starfinu innan kirkjunnar en hún lítur á kirkjuna sem samfélagstorg og vill að hún sé opin fyrir alla. Úlfatíminn er tími fyrir fjölskyldur sem geta komið einu sinni í mánuði og leikið sér saman seinni partinn og borðað saman og þetta hefur mælst vel fyrir. Foreldrar eru líka með í fermingarfræðslunni en það er nýlunda og við heyrðum meira um þetta í spjallinu. Við heyrðum um meistararitgerð þar sem fjallað er um systkinaofbeldi. Þórdís Bjarnleifsdóttir meistaranemi í félagsráðgjöf við félagsvísindasvið Háskóla Íslands segir að systkinaofbeldi sé ekki skilgreint og lítið ef nokkuð rannsakað á Íslandi en yfirskrift ritgerðar hennar er „Þögnin í kringum systkinaofbeldi: Viðhorf fagfólks til ósýnilegs ofbeldis innan fjölskyldunnar.“ Markmið rannsóknarinnar var að kanna skilgreiningar, viðhorf og viðbrögð fagfólks sem vinnur með fjölskyldum og börnum, gagnvart systkinaofbeldi. Þórdís sagði okkur meira frá þessu í dag. Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið. Hún hefur frætt okkur á miðvikudögum um merkilega hluti sem eru að gerast í heimi vísindanna og í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir hvernig bakterían Morganella morganii getur ýtt undir, eða jafnvel valdið þunglyndi. Tónlist í þættinum í dag: Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst) Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Harvest Moon / Neil Young (Neil Young) Háa c / Mosess Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 29, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Hildur Björk í Glerárkirkju, systkinaofbeldi og vísindaspjall með Eddu

0:00 52:04

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 29, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!