EPISODE · Apr 8, 2026 · 50 MIN
Hjóla 3500 km. á 34 dögum, Bústaðabúar og vísindaspjallið
from Mannlegi þátturinn
Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson eru á leið í afar krefjandi hjólreiðaferð þar sem þeir munu hjóla um 3.500 km um vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Markmið ferðarinnar er að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Þeir komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessu ferðalagi sem hefst nú um helgina. Heiða Björk Sturludóttir er að skrifa bók sem heitir Bústaðabúar, bók um fólk sem á sitt aðalheimili í svokölluðum frístundahúsum. Þetta er viðtalsbók til að kynna þennan lífsstíl og sýna hversu mikil fjölbreytni er í hópnum. Alls kyns fólk á alls kyns aldri sem fæst við alls kyns. Við ræddum við Heiðu Björk í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá nýju lyfi gegn beinþynningu. Tónlist í þættinum í dag: Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason) Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson) Green Green Grass of Home / Tom Jones (Curly Putman) Hey Rube / The Rocketeers (S. Johnson & A. Johnson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Hjóla 3500 km. á 34 dögum, Bústaðabúar og vísindaspjallið
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.