Hrafnhildur og útikennsla og Lára Sigurðardóttir um neyslu nikótínpúða episode artwork

EPISODE · Dec 3, 2024 · 50 MIN

Hrafnhildur og útikennsla og Lára Sigurðardóttir um neyslu nikótínpúða

from Mannlegi þátturinn

Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ, hlaut Íslensku menntaverðlaunin sem voru veitt á dögunum við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut hún í flokknum framúrskarandi kennsla, en Hrafnhildur var verðlaunuð fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt. Hrafnhildur var hjá okkur í dag og við fengum hana til að segja okkur frá sínum störfum og aðferðum við útikennslu. Nikótín hefur mikil og neikvæð áhrif á taugakerfi ungmenna, veldur kvíða, hjartsláttartruflunum, svefnleysi og er í raun örvandi og ávanabindandi efni sem þau þurfa raunverulega að vara sig á. Í Heilsuvakt dagsins ræddi Helga Arnardóttir við Láru Sigurðardóttur, lækni og lýðheilsufræðing, um sívaxandi nikótín notkun meðal ungmenna, í formi púða og veips, sem eru stundum með margfalt meira magn nikótíns en sígarettur. Lára segir nikótínið rótsterkt efni, sem hafi neikvæð áhrif á svefn og einbeitingu ólíkt því sem margir halda fram. Hún lýsir einnig hvernig líkamleg fráhvörf koma fram þegar neyslu þess er hætt og gefur góð ráð til þeirra sem vilja venja sig af þessum óþverra. Tónlist í þættinum: Ef ég nenni / Helgi Björnsson (Zucchero, texti Jónas Friðrik Guðnason) Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Happy Holiday, The Holiday Season / Silva & Steini (Irving Berlin) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 3, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Hrafnhildur og útikennsla og Lára Sigurðardóttir um neyslu nikótínpúða

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on December 3, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!