Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni episode artwork

EPISODE · Jun 16, 2026 · 50 MIN

Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni

from Mannlegi þátturinn

Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að sannfæra viðmælendur sína um að þau væru gott fólk og oftar en ekki að „þau væru sko mjög vestræn“. Miriam var hjá okkur í þættinum í dag. Landsmót UMFÍ 50+ fer fram helgina og aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Keppt verður í 18 greinum á mótinu og við slógum á þráðinn norður og töluðum við Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa og framkvæmdastjóra Landsmóta UMFÍ. Notkun tíðahvarfahormóna hefur aukist talsvert hér á landi síðustu fimm ár. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að það er ekki áhættulaust, eins og margir gætu haldið, heldur er talið að þau geti aukið áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum ef þau eru notuð of lengi og í of miklu magni. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og prófessor í Háskóla Íslands segir tíðahvarfahormón klárlega eiga rétt á sér ef einkenni breytingaskeiðs hjá konum eru mikil og þrálát en þá til eins skamms tíma og hægt er. Helga Arnardóttir ræddi við Sigurdísi í Heilsuvaktinni í dag um þetta og helstu áhættuþætti fyrir krabbameini hjá konum. Tónlistin í þættinum: Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Matt Poulson, texti Iðunn Steinsdóttir) Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, texti Tómas Guðmundsson) Lets Go Away for a While / Beach Boys (Brian Wilson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

NOW PLAYING

Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on June 16, 2026.

What is this episode about?

Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En...

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!