Ímynd tengdamæðra, vinkill og Nanna Hlín lesandinn episode artwork

EPISODE · Feb 26, 2024 · 50 MIN

Ímynd tengdamæðra, vinkill og Nanna Hlín lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Í dag verður flutt dálítið óvenjulegt erindi í Fræðakaffi á Borgarbókasafninu í Spönginni en yfirskrift þess er Ímynd tengdamæðra og það er þjóðfræðingurinn og skagfirðingurinn Eiríkur Valdimarsson sem mun flytja það. Í fréttatilkynningu segir: Af einhverjum ástæðum eru til ógrynni af bröndurum og skopmyndum þar sem tengdamæður eru gjarnan hafðar að háði og spotti. Þetta skemmtiefni byggir á ímynd sem margir hafa heyrt og séð, að tengdamæður séu uppáþrengjandi, yfirgangs- og afskiptasamar – sumsé býsna erfiðar manneskjur. Eiríkur Valdimarsson keyrði frá Hólmavík til Reykjavíkur og kom í þáttinn til að segja okkur frá tengdamæðrum. Við fengum vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við hinar ýmsu ástæður þess að maður gengur til liðs við allskonar félagasamtök. Hann segir frá samkomu í einum af þeim fjölmörgu félögum sem hann er í, Hið Íslenzka Fyrritíðarfjelag, en samkvæmt Guðjóni er samkoman gríðarlegt tilhlökkunarefni á hverju ári. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Nanna talaði um eftirfarandi bækur: The Expanse, bókasería eftir James S.A. Corey (Daniel Abraham og Ty Franck) The Book of Goose eftir Yiyun Li Sick and Tired: An Intimate History of Fatigue eftir Emily K. Abel Lilith’s Brood eða Xenogenesis, þríleikur (Dawn, Adulthood Rides og Imago) eftir Octaviu Butler Að lokum talaði Nanna um bókina Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson Tónlist í þættinum: Átján rauðar rósir / Lúdó og Stefán og Berti Möller (Bobby Darin og Iðunn Steinsdóttir) Kúst og fæjó / Heimilstónar (Elva Ósk Ólafsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir) Aska og Gull / Sváfnir Sigurðarson (Sváfnir Sigurðarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 26, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Ímynd tengdamæðra, vinkill og Nanna Hlín lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 26, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!