Inga Eydal um föður sinn, Þjóðskjalasafnið og Vilhjálmur Pétursson lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Jun 15, 2026 · 50 MIN

Inga Eydal um föður sinn, Þjóðskjalasafnið og Vilhjálmur Pétursson lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Við heyrðum í Ingu Eydal í dag, hún var í hljóðstofu fyrir norðan og við ræddum við hana um föður hennar Ingimar Eydal tónlistarmann en þessa dagana er einmitt verið að auglýsa tónleika honum til heiðurs, en hann hefði orðið níræður í haust. Ingimar lék á píanó og var einn vinsælasti hljómsveitarstjóri á Íslandi og fjölhæfur tónlistarmaður. Ingimar var einnig vinsæll kennari og tók virkan þátt í bæjarlífinu á Akureyri. Ingimar stofnaði eigin hljómsveit 1962, Hljómsveit Ingimars Eydal sem lék í Sjallanum á Akureyri um margra áratuga skeið. Við skruppum á Þjóðskjalasafn Íslands og töluðum við Brynhildi Ingvarsdóttur fagstjóra miðlunar og útgáfu þar á bæ. Hún sagði frá hinum ýmsu leiðum miðlunar til að almenningur eigi sem greiðastan aðgang að safninu. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Vilhjálmur Pétursson rithöfundur og þýðandi. Hann var að gefa út fyrstu skáldsögu sína, nóvelluna, Harðindi, sem fékk fljúgandi start og vann samkeppnina Nýjar raddir hjá Forlaginu. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Vilhjálmur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Huldukonan e. Fríðu Ísberg Irpa e. Hildi Knútsdóttur Project Hail Mary e. Andy Weir Góðir Íslendingar e. Huldar Breiðfjörð Minnisbók e. Sigurð Pálsson Tónlistin í þættinum: María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (J. Moreno & L. Moreno, texti Ásta Sigurðardóttir) Vor í Vaglaskógi / Hljómsveit Ingimars Eydal (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 15, 2026

Embed this episode

Ready to play

Inga Eydal um föður sinn, Þjóðskjalasafnið og Vilhjálmur Pétursson lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on June 15, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!