Ingi köngulóamaður og Harpa um breytingaskeiðið á Heilsuvaktinni episode artwork

EPISODE · Jan 27, 2026 · 50 MIN

Ingi köngulóamaður og Harpa um breytingaskeiðið á Heilsuvaktinni

from Mannlegi þátturinn

Ingi Agnarsson kallar sig stundum köngulóamann, en hann er prófessor hjá Líf- og umhverfisvísindadeild við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ og doktor í þróunarfræði. Ingi sérhæfir sig í köngulóm og hann hefur ferðast á mjög áhugaverða staði í heiminum og uppgötvað fjölda nýrra köngulóategunda, til dæmis á Madagascar. Og ef þú uppgötvar nýja tegund þá máttu gefa henni nafn. Hvernig endar maður fæddur á eyju í Norður-Atlantshafi sem köngulóafræðingur? Við fengum Inga til að segja okkur frá því hvernig þetta kom til og hann svaraði óteljandi spurningum sem vöknuðu hjá okkur þegar við komumst yfir hrollinn að hugsa um stóran hóp af köngulóm. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Mikið er rætt um hvers kyns áhrif af völdum breytingaskeiðsins en minna er rætt um sálræna kvilla sem gera oft vart við sig á þessum tíma í líf kvenna. Varnir þeirra falla niður og gömul sár eða áföll vilja oft leita upp á yfirborðið. Harpa Katrín Gísladóttir hefur starfað sem klínískur sálfræðingur í áraraðir, hún segir t.d. kvíða, sjálfsefa, minna sjálfsálit, depurð og jafnvel þunglyndi oft vera fylgifiska breytingaskeiðsins. Hún býður nú upp á námskeið fyrir litla hópa til að gefa konum verkfæri til að takast á við þessa þætti. Helga ræddi við Hörpu á heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Kónguló / Hafdís Huld (Hafdís Huld Þrastardóttir) Pöddulagið / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir) Hámenningin / Halli Reynis (Haraldur Reynisson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 27, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Ingi köngulóamaður og Harpa um breytingaskeiðið á Heilsuvaktinni

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 27, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!