Ingibjörg ljósmóðir, kjarakönnun Einingar Iðju og vísindaspjallið með Eddu episode artwork

EPISODE · Feb 25, 2026 · 50 MIN

Ingibjörg ljósmóðir, kjarakönnun Einingar Iðju og vísindaspjallið með Eddu

from Mannlegi þátturinn

Við kynntumst Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður, sérfræðingur í ljósmóðurfræðum og brjóstagjafaráðgjafa í þættinum í dag. Landspítalinn stóð fyrir heiðursmálþingi vegna starfsloka hennar sem sérfræðiljósmóður við spítalann og miðað við erindin sem þar voru flutt þá er óhætt að segja að hún hafi markað djúp spor í faginu og verið fyrirmynd og áhrifavaldur. Ingibjörg er brautryðjandi í umönnun og fræðslu í fjölburameðgöngum, fæðingum og brjóstagjöf á Landspítalanum. Við töluðum við Ingibjörgu á þessum tímamótum, fengum hana til að rifja aðeins upp ferilinn og þróunina í faginu í þættinum. Kjarakönnun sem Gallup framkvæmdi undir lok síðasta árs fyrir norðlenska stéttarfélagið Einingu Iðju sýnir að vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar og stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019 og yngra fólkið á sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Við ræddum við Tryggva Jóhannsson varaformann Einingar Iðju í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að sykurneysla fyrstu 1000 daga ævinnar (þ.m.t. á skeiði fósturþroska) getur haft neikvæð áhrif á hjarta og æðaheilsu. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum í dag Dag eftir dag / Múgsefjun (Eva Hafsteinsdóttir og Hjalti Þorkelsson) Ævintýri / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson) Just Breathe / Willie Nelson & Lukas Nelson (Eddie Vedder) Á rauðum sandi / Ylja (Guðný Gígja Skjaldardóttir, Bjartey Sveinsdóttir og Smári Tarfur Jósepsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 25, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Ingibjörg ljósmóðir, kjarakönnun Einingar Iðju og vísindaspjallið með Eddu

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 25, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!