Íris Stefanía og Kynveran og netnámskeið Geðverndarfélagsins episode artwork

EPISODE · Sep 18, 2024 · 50 MIN

Íris Stefanía og Kynveran og netnámskeið Geðverndarfélagsins

from Mannlegi þátturinn

Íris Stefanía Skúladóttir kom í þáttinn í dag. Hún er að fara af stað með námskeiðið Kynveran í Kramhúsinu. Hún hefur þróað það í tvö ár í framhaldi af lokaverkefni hennar frá LHÍ sem kallaðist „Þegar ég fróa mér“. Eftir útskrift hefur verkefnið lifað góðu lífi og vaxið og dafnað. Hún hefur meðal annars farið með það á leiklistarhátíð í Finnlandi nýlega, einnig til Hollands og Akureyrar. Íris sagði okkur frá því hvernig þetta verkefni varð til, þær viðtökur sem hún fékk þegar hún sýndi þessum málum áhuga ung að aldri og því hvernig þau misgóðu viðbrögð gerðu hana enn ákveðnari í að rannsaka kynveruna í okkur og að láta ekki skömmina stjórna sér. Eins og hún segir, því betur sem við tengjumst kynverunni í okkur sjálfum, því fyrr byrjum við að elska okkur og sættast við okkur sjálf. Við fræddumst svo um ný netnámskeið sem verða tekin í gagnið á næstunni. Þau eru á vegum Geðverndarfélags Íslands í samvinnu við bresk heilbrigðisyfirvöld. Námskeiðin, sem eru sem sagt á vefnum https://inourplace.co.uk/iceland/ og verða opin fyrir alla án endurgjalds. Þau eru hugsuð fyrir fjölskyldur, foreldra, aðstandendur, ömmur og afa og einnig verða námskeið eingöngu fyrir unglinga. Námskeiðin eru 17 talsins og verða öll á íslensku, en fyrsta námskeiðið sem búið er að þýða á íslensku er „Að skilja barnið - frá smábarni til unglings“. Kjartan Valgarðsson, framkvæmdastjóri Geðverndarfélagsins, kom í þáttinn og sagði okkur frekar frá þessum námskeiðum og hvernig þau virka. Tónlist í þættinum: Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson) Unforgettable / Aretha Franklin (Irwing Gordon) Grasaferð / Snorri Helgason (Snorri Helgason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 18, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Íris Stefanía og Kynveran og netnámskeið Geðverndarfélagsins

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 18, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!