EPISODE · Feb 9, 2026 · 50 MIN
Jákvæð sálfræði á þriðja æviskeiðinu, handboltalandsliðið 1961 og Guðný lesandi vikunnar
from Mannlegi þátturinn
Þriðja æviskeiðið er tími þar sem margir staldra við og endurmeta stöðuna og forgangsröðun. Við forvitnuðumst í dag um hvernig jákvæð sálfræði getur nýst fólki sem komið er á þetta tímabili. Hrefna Guðmundsdóttir vinnusálfræðingur og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði stendur fyrir námskeiðinu Þriðja æviskeiðið með augum jákvæðrar sálfræði, hún kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu. Svo hófst í dag nýr liður hjá okkur í Mannlega þættinum, þar sem Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV safnsins, mun koma til okkar með gullmola af safni RÚV. Á safninu leynist endalaust af áhugaverðu efni sem gaman er að rifja upp og í dag kom Helga Lára með í farteskinu, í tilefni þess að þjóðin er nýstigin út úr enn einu handboltafárinu, kostulegt innslag frá 1961 þar sem Íslendingar áttu lið á HM í hanknattleik í Þýskalandi og það er ljóst að það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Við heyrðum þetta innslag í fylgd Helgu Láru í dag. Í innslaginu heyrðist í fréttamanninum Sigurði Sigurðssyni, Hallsteini Hinrikssyni landsliðsþjálfara, Ásbirni Sigurjónssyni þáverandi formaður HSí og Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráðherra. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Guðný Ragnarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur á Stofnun Árna Magnússonar. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðný talaði eftirfarandi bækur og höfunda: Seasonal Quartet – Árstíðakvartettinn (samanstendur af 4 bókum: Autumn, Winter, Spring og Summer) e. Ali Smith The Magician (Galdramaðurinn) e. Colm Tóibín. Lausaletur e. Þórdísi Helgadóttur Salka Valka e. Laxness Tónlist í þættinum í dag: Traustur vinur / Upplyfting (Jóhann G. Jóhannsson) Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson) Fyrsti kossinn / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Jákvæð sálfræði á þriðja æviskeiðinu, handboltalandsliðið 1961 og Guðný lesandi vikunnar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.