Kalak - vinafélag Íslands og Grænlands, fjármál og sambönd og Þórhildur lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Mar 10, 2025 · 53 MIN

Kalak - vinafélag Íslands og Grænlands, fjármál og sambönd og Þórhildur lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Kalak er heiti á vinafélagi Grænlands og Íslands var stofnað í mars árið 1992. Markmið KALAK er að vinna að auknum samskiptum Íslands og Grænlands, einkum á sviði félags- og menningarmála. Félagið hefur gegnum tíðina haldið fjölmörg mynda- og fræðslukvöld, staðið fyrir grænlenskum dögum og stutt við samfélagsleg verkefni á Grænlandi, sérstaklega í þágu ungs fólks. Stærsta verkefni KALAK hefur verið heimsókn 12-13 ára barna, frá litlu þorpunum á austurströnd Grænlands. Hingað hafa þau komið ásamt fylgdarliði kennara og til dæmis sótt skóla í Kópavogi, þar sem þau kynnast jafnöldrum. KALAK hefur líka frá upphafi tekið virkan þátt í skáklandnámi og verkefnum Hróksins á Grænlandi. Jósep Gíslason formaður og Skúli Pálsson gjaldkeri komu í þáttinn í dag. Georg Lúðvíksson var hjá okkur í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn talaði hann um fjármál og sambönd. Mikilvægi þess að vera á sömu blaðsíðu í fjármálum í sambandi eða hjónabandi. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Þórhildur Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri hjá ráðgjafafyrirtækinu Brú Strategy, hlaðvarpsstjórnandi og dagskrárgerðarkona. Hún sagði okkur hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Þórhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Þúsund bjartar sólir e. Khaled Hosseini Small things like these e. Klare Ceegan Karitas án titils / Óreiða á striga e. Kristín Marja Baldursdóttir Everything I know about love e. Dolly Alderton Á milli landshorna e. Sigurður Sigurmundsson frá Hvítárdal (afi Þórhildar) Bróðir minn ljónshjarta e. Astrid Lindgren Tónlist í þættinum í dag: Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson) Verum í sambandi / Sprengjuhöllin (Bergur Ebbi Benediktsson og Snorri Helgason) Aleinn og mæddur / HIGG & HB (Jimmy Cox, texti Gunnar Jóhannes Gunnarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 10, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Kalak - vinafélag Íslands og Grænlands, fjármál og sambönd og Þórhildur lesandi vikunnar

0:00 53:05

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 53 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 10, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!