Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Apr 20, 2026 · 54 MIN

Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórnandi kórsins Friðrik S Kristinsson og formaður kórsins Bóas Valdórsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá tónleikunum og kórstarfinu. Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið, en þar tók Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og sagnfræðingur á móti okkur. En hún deildi með okkur skjölum sem varðveitt hafa verið frá því að Friðrik 8. Danakonungur kom í heimsókn til Íslands árið 1907. Fyrir litla og fámenna þjóð þurfti að lyfta grettistaki, jafnvel mörgum, til þess að geta tekið á móti konungi og fylgdaliði svo sómi væri að. Helga Jóna fór með okkur yfir þessa heimsókn og sýndi okkur heilmargt merkilegt sem varðveist hefur frá henni. Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Henning Emil Magnússon prestur í Mosfellsbæ. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Henning talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Bread of Angels e. Patti Smith Leðurblakan og perutréð e. Yosa Buson Missing Person e. Patrick Modiano Glerþræðirnir e. Magnús Sigurðsson Dísa Ljósár Íslandsklukkan Gísla saga Súrssonar Gyrðir Elíasson Tónlist í þættinum á mánudaginn 20.apríl Sólin er komin / Mugison (Mugison e. Örn Elías Guðmundsson) Hraustir menn / Karlakór Reykjavíkur (Sigmund Romberg, texti Jakob Jóhannesson) Allt ljómar / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 20, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar

0:00 54:15

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 54 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 20, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!