Karlar og krabbamein, vinkill frá Mongólíu og Ragnheiður lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Nov 25, 2024 · 50 MIN

Karlar og krabbamein, vinkill frá Mongólíu og Ragnheiður lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur. Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag. Nú í nóvember er verið að selja Bláa trefilinn til styrktar félaginu og við fengum þá Stefán Stefánsson framkvæmdastjóra og Guðmund Pál Ásgeirsson formann í spjall í dag. Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins var að þessu sinni víðs fjarri dægurþrasi um stjórnmál, væntanlegar kosningar, möguleg og ómöguleg úrslit þeirra, eldgos og aðrar hamfarir bæði í tíma og rúmi, því austur í Innri Mongólíu eru borgarrústir sem vöktu áhuga Guðjóns. Hvaða fólk byggði staðinn og hvers vegna þarna í miðri eyðimörk? Hvernig stóð á því að staðurinn fór í eyði? Og hverjum datt í hug að grafa borgina upp úr sandinum? Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ragnheiður Jónsdóttir rithöfundur og íslenskufræðingur. Hún hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir fyrstu bók sína, Blóðmjólk, en nú er komin út ný bók eftir hana, Svikaslóð. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá þeirri bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum: Fönn fönn fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og texti Þórður Árnason) Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Á skíðum skemmti ég mér / Bogomil Font (B.Berg, G. Rucher & H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 25, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Karlar og krabbamein, vinkill frá Mongólíu og Ragnheiður lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on November 25, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!