Kosningafundur LEB, Jónatan um Óðinn Valdimarsson og póstkort frá Magnúsi episode artwork

EPISODE · Nov 20, 2024 · 50 MIN

Kosningafundur LEB, Jónatan um Óðinn Valdimarsson og póstkort frá Magnúsi

from Mannlegi þátturinn

Landssamband eldri borgara hefur boðað til kosningafundar á morgun með frambjóðendum allra flokka sem bjóða fram á landsvísu. Málefni fundarins verða þau mál sem brenna mest á eldri borgurum þessa lands, svo sem kjaramál, heilbrigðismál og húsnæðismál. Frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram á landsvísu munu kynna sín stefnumál í þeim málaflokkum sem snúa að eldri borgurum og að því loknu verða pallborðsumræður. Helgi Pétursson formaður LEB og formaður kjaranefndar sambandsins, Björn Snæbjörnsson voru hjá okkur í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og tók upp þráðinn frá því í vor og hélt áfram að segja okkur frá íslensku tónlistarfólki. Í dag sagði hann okkur frá Óðni Valdimarssyni, sem hefur á allra síðustu árum tengst laginu Er völlur grær (Ég er kominn heim) en þessi magnaði söngvari söng mun fleiri lög sem náðu miklum vinsældum og segja má að flest það sem hann kom nálægt á yngri árum hafi orðið sígilt og heyrist reglulega á öldum ljósvakans. Ævi Óðins var hins vegar þyrnum stráð og Jónatan sgði okkur betur frá í þættinum. Við fengum svo að lokum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Það verður norðan átt ríkjandi næstu daga í Vestmannaeyjum og því fagnar Magnús í póstkorti dagsins. Þrátt fyrir kulda er fallegt gluggaveður og samgöngur tryggari við Landeyjahöfn en í útsynningnum sem hefur gert Eyjamönnum lífið leitt að undanförnu. Það er mikið fjallað um hugsanleg göng milli lands og Eyja núna fyrir kosningarnar, sem Magnúsi líst svona í döpru lagi á að muni raungerast. Póstkortið sagði líka af straumi ungra Afríkumanna til Rússlands og í framhaldinu er fjallað um hið gríðarlega mannfall í stríðinu við Úkraínu sem hugsanlega muni draga Rússa að samningsborðinu. Tónlist í þættinum Hringrás lífsins / Berglind Björk Jónasdóttir (Alan Menken - Ólafur Haukur Símonarson) Hringrás lífsins / Páll Rósinkrans og Icelandic Pop Orchestra (Rúnar Þór Pétursson, texti Ómar Ragnarsson) Hringrás / Þorgrímur Jónsson Quintett (Þorgrímur Jónsson) Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imré Kálmán, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 20, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Kosningafundur LEB, Jónatan um Óðinn Valdimarsson og póstkort frá Magnúsi

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on November 20, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!