Kraftur, K2 námsbrautin og snjóþyngsli episode artwork

EPISODE · Jan 30, 2024 · 50 MIN

Kraftur, K2 námsbrautin og snjóþyngsli

from Mannlegi þátturinn

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hefur hleypt af stokkunum árlegu átaki sínu, Lífið er núna. Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts kom til okkar í dag og sagði okkur frá átakinu og starfsemi Krafts, sem er 25 ára í ár og með henni kom Melrós Eiríksdóttir, en hún sagði okkur erfiða reynslusögu sína en hún greindist 33 ára með 4. stigs leghálskrabbamein. Næsta fimmtudag mun Kraftur standa fyrir því að fá fólk til sín að perla ný armbönd, frá kl. 16-20 í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð. K2 Tækni- og vísindabraut Tækniskólans er framsækið þriggja ára stúdentsnám í bekkjakerfi þar sem megináhersla er á verkefnavinnu, lausnaleit og gagnrýna og skapandi hugsun. Það eru 90 nemendur á brautinni og áhersla er lögð á að hver og einn nemandi nái árangri og vel sé haldið utan um þá. Sigríður Halldóra Pálsdóttir brautarstjóri kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessari námsbraut. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í veðurspjallið í dag. Hann ræddi við okkur um tíðina og spána fram undan og illviðri í Noregi sem tengist þessu öllu saman. Svo rifjaði Einar upp snjóþyngsli úr fortíðinni, nánar tiltekið frá lok janúar árið 1952. Tónlist í þætti dagsins: Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi) Berglind Björk Jónasdóttir / Hvert er heimurinn að fara? (Hrafn Pálsson) The Consequences of Falling / K.D. Lang (Billy Steinberg, Rick Nowels & Marie Claire D'Ubaldo) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 30, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Kraftur, K2 námsbrautin og snjóþyngsli

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 30, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!