Kristín Sigurðardóttir um áhrif áfengis og Sóley og Auðbjörg fyndnari en nokkru sinni episode artwork

EPISODE · Jan 21, 2026 · 50 MIN

Kristín Sigurðardóttir um áhrif áfengis og Sóley og Auðbjörg fyndnari en nokkru sinni

from Mannlegi þátturinn

Það standa yfir læknadagar í Hörpu og ráðstefnan opnaði á mánudeginum með tveimur málþingum um áfengi og lýðheilsu og það hefur vakið athygli í fjölmiðlum og áfram verður fjallað um þetta mikilvæga málefni á opnu málþingi fyrir almenning í kvöld kl.20.00 - Áfengi í alfaraleið. Síðastliðinn mánudag flutti Kristín Sigurðardóttir læknir erindi sem hét Flótti í flöskuna – áhrif álags og áfalla. Kristín starfaði lengi sem bráðalæknir og varð vör við breytingu á afleiðingum áfengisneyslu eftir að hún kom heim úr sérnámi og lenging á opnunartíma öldurhúsa hafði átt sér stað. Kristín fór með okkur yfir þessi mál í þættinum í dag. Sóley Kristjáns og Auðbjörg Ólafs eru, eins og þær orða það sjálfar, tvær miðaldra á breytingarskeiðinu sem eru ferskari og fyndnari en nokkru sinni fyrr, enda konur með reynslu. Þær hafa verið saman með uppistandssýningu sem kallast Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði? sem þær ferðuðust með um landið. Þær eru nú með aðra sýningu í Tjarnarbíói sem þær kalla Konur þurfa bara... í henni fjalla þær um lærdóminn og það skemmtilega sem svona brölti miðaldra kvenna fylgir. Þær sögðu okkur aðeins frá þessu svokallaða brölti í dag. Tónlist í þættinum: Norðurljós / Eyjólfur Kristjánsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson) GMF / John Grant (John Grant) Ferry Cross the Mercy / Gerry and the Pacemakers UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 21, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Kristín Sigurðardóttir um áhrif áfengis og Sóley og Auðbjörg fyndnari en nokkru sinni

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 21, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!