Kynferðisbrot unglinga á milli, Smiðjan og nikótínpúðanotkun frá sjónarhorni tannlækna episode artwork

EPISODE · Feb 25, 2025 · 51 MIN

Kynferðisbrot unglinga á milli, Smiðjan og nikótínpúðanotkun frá sjónarhorni tannlækna

from Mannlegi þátturinn

Um 730 unglingar í 8. til 10. bekk svöruðu því játandi að annar unglingur hefði brotið á þeim kynferðislega í Íslensku æskulýðsrannsókninni. Ekki tóku allir skólar þátt í rannsókninni og talið er að aðeins helmingur barna segi frá slíku ofbeldi, því má ætla að raunverulegar tölur séu hærri. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheill, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessum niðurstöðum og fræðslu sem er í boði til dæmis fyrir foreldra. Sýningin Gleðin að gera og vera var opnuð í Borgarbókasafninu í Spönginni í síðustu viku og þar má sjá svipmyndir úr fjölbreyttu starfi fatlaðs fólks hjá Virknimiðstöð Reykjavíkur og verk sem fatlað fólk á öllum aldri hefur unnið. Virknimiðstöð Reykjavíkur er úrræði fyrir fólk með fötlun á öllum aldri og samanstendur af þremur starfsstöðum sem eru starfandi í Efra Breiðholti og Grafarvogi, Opus: vinna og virkni, Iðjuberg og Smiðjan. Við heimsóttum Smiðjuna í gær og töluðum við Árna Elfar Guðjónsen, en hann tekur þátt í sýningunni, og Melkorku Eddu Freysteinsdóttur deildarstjóra Listasmiðjunnar. Notkun nikótínpúða hefur verið talsvert í fréttum undanfarin ár, ekki síst notkun ungs fólks en einnig fullorðinna. Íris Þórsdóttir tannlæknir kom í þáttinn og sagði okkur frá því hvernig tannlæknar verða varir við notkun nikótínpúða í sínu starfi, en þeir geta séð, jafnvel talsvert áður en notendur átta sig, áhrif og afleiðingar slíkrar notkunar. Við fengum Írisi til að segja okkur hverjar afleiðingarnar eru og hvernig þetta lítur út frá sjónarhorni tannlækna. Tónlist í þættinum í dag Landíbus með jökri (Nú hvaða hvaða?) / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Svo til / Latínudeildin og Rebekka Blöndal (Ingvi Þór Kormáksson, texti Rebekka Blöndal) She’s Always a Woman / Billy Joel (Billy Joel) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 25, 2025

Embed this episode

Ready to play

Kynferðisbrot unglinga á milli, Smiðjan og nikótínpúðanotkun frá sjónarhorni tannlækna

0:00 51:53

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 51 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 25, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!