Læknanemi í Moulin Rouge, sjálfboðaliðar á Ryder Cup og hraðstefnumót í Bíó Paradís episode artwork

EPISODE · Oct 1, 2025 · 52 MIN

Læknanemi í Moulin Rouge, sjálfboðaliðar á Ryder Cup og hraðstefnumót í Bíó Paradís

from Mannlegi þátturinn

Moulin Rouge, söngleikurinn sem gerist á samnefndum skemmtistað í París í lok 19. aldarinnar og er gerður upp úr gríðarlega vinsælli kvikmynd frá árinu 2001, var frumsýndur um helgina í Borgarleikhúsinu. Þetta er mikið sjónarspil, söngur, dans, eldheit ást í meinum, veisla fyrir augu og eyru. Þetta var frumraun Péturs Ernis Svavarssonar á Stóra sviðinu, en hann fer með hlutverk Babydoll sem er ein af söngdívum staðarins. Pétur er með BA í klassískum píanóleik og söng, hann hefur einnig klárað meistaranám í söngleikjum frá Royal Academy of Music í London og eins og það sé ekki nú, núna er hann í læknisfræði í HÍ og þurfti til dæmis að fá frí á æfingum til að fara í próf í læknisfræðinni. Það er greinilega nóg um að vera hjá Pétri Erni og við fengum hann til að segja okkur betur frá í dag. Annað hvert ár fer fram einn stærsti viðburður í heimi kylfinga, Ryder Cup, þar sem lið samansett af 12 bestu kylfingum Evrópu keppa á móti 12 bestu kylfingum Bandaríkjanna. Gríðarlegur fjöldi mætir á staðinn til að horfa hvetja sitt lið og eðlilega flestir sem halda með heimaliðinu, en keppnin er haldin til skiptis vestan hafs og í Evrópu. Meðal rúmlega fjögur þúsund sjálfboðaliða á Ryder bikarnum í ár, sem fór fram um síðustu helgi í New York, voru hjónin Kjartan Drafnarson og Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir. Við slógum á þráðinn til þeirra og fengum að vita hvernig það kom til, hvað felst í því að vera sjálfboðaliði á svona móti og svo komumst við ekki hjá því að ræða framkomu áhorfenda, sem talsvert var fjallað um í fréttum, en þau segja að sjónvarpsáhorfendur hafi bara séð smá brot af því sem þar gerðist. Klukkan sjö í kvöld hefjast svo aftur hraðstefnumót í Bíó Paradís og nú er fólk á aldrinum 45-60 ára hvatt til að koma en sárlega vantar þó fleiri karlmenn á stefnumótin sem þó hafa verið afar vinsæl og mæting góð. Við heyrðum meira af þessum stefnumótum frá Hrönn Sveinsdóttur og Ásu Baldursdóttur sem halda um stjórnartaumana í Bíó Paradís. Tónlist í þættinum í dag: Lífsbókin / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, ljóð Laufey Jakobsdóttir) Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Michel Legrand, texti Hjördís Morthens) Rikki Don’t Lose that Number / Steely Dan (W. Becker & Donald Fagan) Everybody´s Talking / Harry Nilsson (Fred Neil) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 1, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Læknanemi í Moulin Rouge, sjálfboðaliðar á Ryder Cup og hraðstefnumót í Bíó Paradís

0:00 52:27

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 1, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!