Langvinn Covid einkenni, Hljóðóþol og Efnaskiptavandi episode artwork

EPISODE · Sep 24, 2024 · 50 MIN

Langvinn Covid einkenni, Hljóðóþol og Efnaskiptavandi

from Mannlegi þátturinn

Hópur fólks hér á landi sem hefur glímt við alvarleg og langvinn veikindi eftir COVID kallar eftir vitundarvakningu og úrræðum í íslensku heilbrigðiskerfi. Þessi eftirköst og veikindin hafa gert það að verkum að fólk er nánast óvinnufært og glímir við margvíslegan heilsubrest á borð við eilífðar flensueinkenni, mæði, slæma hausverki, ógleði, heilaþoku, máttleysi og margt fleira. Þær Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir og Sigríður Elín Ásgeirsdóttir sem báðar hafa verið heilsuhraustar og miklar íþróttakonur segja líf sitt hafa kollvarpast eftir að þær greindust með Covid fyrir tveimur árum. Þær komu í þáttinn. Hljóðóþol er taugaröskun sem lýsir sér í því, að upplifum tiltekinna hljóða veldur svo mikilli vanlíðan að það truflar allar athafnir daglegs lífs. Mikilvægt er að greina börn með hljóðóþol snemma þannig að hægt sé að gera ráðstafanir sem koma í veg fyrir að hljóðóþolið trufli nám og félagslegan þroska og það þarf að útbúa greiningartól og fræðsluefni fyrir starfólk menntastofnana. Heyrnarhjálp vinnur nú í að undirbúa ráðstefnu um Hljóðóþol og ráðstefnan verður 15.okt. Halla B. Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar og Hjörtur H Jónsson fv. Formaður,komu í þáttinn. Fólk sem greinist með efnaskiptavillu eða hvers kyns lífsstíls kvilla sem geta leitt til alvarlegra sjúkdóma geta nú fengið ráðgjöf um sitt heilsufar, mataræði og lífstíl og leiðrétt það með hjálp tveggja lækna, sem eru reyndar líka hjón en þau stofnuðu nýlega heilsufyrirtækið Sound Health lífstílslækningar í þeim tilgangi að veita fólki ráðgjöf um hvernig það getur sjálft gripið í taumana. Þau Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla H. Karlsdóttir ræddu um efnaskiptaheilsu og einnig úrræði fyrir langvinn Covid einkenni. Tónlist í þættinum: Eyjólfur Kristjánsson - Kiddi greifi. Thomas, B.J. - Raindrops keep fallin' on my head. Beatles, The - Blackbird. Umsjón Helga Arnardóttir og Guðrún Gunnarsdóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 24, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Langvinn Covid einkenni, Hljóðóþol og Efnaskiptavandi

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 24, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!