Leghálsskimanir, Reiðmaðurinn og mannlegu samskiptin episode artwork

EPISODE · Jan 15, 2026 · 50 MIN

Leghálsskimanir, Reiðmaðurinn og mannlegu samskiptin

from Mannlegi þátturinn

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, Ungar athafnakonur, Kraft og Lífskraft stendur fyrir nýrri vitundarvakningarherferð um leghálsskimanir undir slagorðinu „Leghálsskimanir – lítið mál!“ en janúar er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður gegn leghálskrabbameini. Markmiðið með vitundarvakningunni er að efla þekkingu, auka þátttöku og styrkja forvarnir gegn leghálskrabbameini á landsvísu. Vala Smáradóttir, formaður og framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins, kom í þáttinn í dag. Við kynntum okkur svo reiðnám sem hefur verið gríðarlega vinsælt undanfarin ár hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið er í fjórum stigum, Reiðmaðurinn I, II, og III og svo er það keppnisnámið. Þarna er reiðfærni knapans þjálfuð alveg frá grunni upp í keppnismennsku. Birna Tryggvadóttir Thorlacius verkefnastjóri námsins kom til okkar í dag og sagði frá þessum námsbrautum og með henni kom Sigurður Ingi Bjarnason gullsmiður, en hann hefur sótt fyrstu þrjú stigin af náminu og er nú í því fjórða, keppnisnáminu. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Hann tók upp þráðinn frá síðasta fimmtudegi og hélt áfram að tala um það að leyfa sér að upplifa gleði, sem var eitt af því sem fólk sá mest eftir í lok ævinnar, þ.e. að hafa ekki leyft sér nógu mikið að upplifa gleði. Tónlist í þættinum: Janúar / Karl Olgeirsson (Karl Olgeirsson) - Close to you / Carpenters (Burt Bacharach & Hald David) Ég skal bíða þín / Reiðmenn vindanna (Michel Legrand, texti Hjördís Morthens) Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 15, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Leghálsskimanir, Reiðmaðurinn og mannlegu samskiptin

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 15, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!