Leikárið fyrir norðan, vinkill um eyjar og Birgitta Björg lesandinn episode artwork

EPISODE · Sep 2, 2024 · 50 MIN

Leikárið fyrir norðan, vinkill um eyjar og Birgitta Björg lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn fór í dag aftur í loftið og við höfum undanfarin haust farið yfir það sem leik- og sviðslistahúsin eru með á döfinni í vetur. Við byrjuðum norður á Akureyri, þar er nýtekinn við starfi leikhússtjóra Bergur Þór Ingólfsson. Hann var í beinni útsendingu frá hljóðveri RÚV fyrir norðan og sagði okkur frá því sem verður á fjölunum á Akureyri í vetur. Svo fengum við fyrsta vinkil haustsins frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkill dagsins fjallar um búsetu manna og hvað það er sem ræður því að við setjumst að á sumum stöðum en ekki öðrum, til dæmis hvers vegna enn er blómleg byggð í Vestmannaeyjum en ekki á eyjunni St. Kildu úti fyrir Suðureyjum Skotlands, sem þó fóstraði mannabyggðir í tvöþúsund ár. Svo var það lesandi vikunnar, við héldum sem sagt áfram að fá áhugaverða einstaklinga í Mannlega þáttinn á mánudögum til þess að deila með okkur bókum og höfundum sem þau hafa verið að lesa og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á í gegnum tíðina. Lesandi vikunnar í dag var Birgitta Björg Guðmarsdóttir, rithöfundur og tónlistarkona, en hún hefur lokið við sína aðra bók sem kemur út síðar í haust. Birgitta sagði okkur frá nýju bókinni og því sem hún hefur verið að lesa. Hún talaði um eftirfarandi bækur: Prophet Song e. Paul Lynch Heaven e. Mieko Kawakami Orlandó e. Virginíu Woolf The Argonauts eftir Maggie Nelson God bless you Mr. Rosewater e. Kurt Vonnegut Milkman e. Anna Burns Tónlist í þættinum: Lífið er lotterí / Þrjú á palli (erlent þjóðlag, texti Jónas Árnason) Snögglega Baldur / Kristinn Óli Haraldsson og Birta Sólveig Söring Þórisdóttir (Alan Menken, Howard Ashman, texti Magnús Þór Jónsson) Blúndustelpa / Ólafur Kram (Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Ólafur Kram) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 2, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Leikárið fyrir norðan, vinkill um eyjar og Birgitta Björg lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 2, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!