Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Aug 31, 2026 · 52 MIN

Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn fór aftur í gang í dag eftir sumarfrí og þátturinn Sumarmál hefur runnið sitt skeið. Eins og undanfarin haust munum við á næstu mánudögum fara í svokallaðan leikhúsrúnt, þar sem við fáum að heyra hvað verður á fjölum leikhúsanna í vetur. Við byrjuðum í dag á því að ræða við Egil Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóra og það sem verður þar á fjölunum í vetur. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar með gullmola úr safni RÚV, pistil frá árinu 1949 sem Geir Aðils, fréttaritari RÚV í Kaupmannahöfn sendi heim. Geir segir þar t.d. frá því þegar skömmtun var aflétt eftir Heimsstyrjöldina, Fegrunarfélagi Kaupmannahafnar og fleiru. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina: Systkinaerjurnar e. Moa Herngren Kæri fáviti e. Virginie Despentes Jakaranda e. Gael Faye Salka Valka, Vefarinn mikli frá Kasmír og Sjálfstætt fólk Tónlist í þættinum í dag: Reykjavík / Spilverk þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) Þrisvar í viku / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson) Greidd skuld er glatað fé / Fánar (Magnús R. Einarsson, Ásgeir Óskarsson og Haraldur Þorsteinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Aug 31, 2026

Embed this episode

Ready to play

Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar

0:00 52:40

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on August 31, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!