Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Sep 14, 2026 · 50 MIN

Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Við héldum áfram að fara yfir sviðið, bókstaflega, og forvitnast um það sem er á leiksviðum landsins á nýhöfnum leikvetri. Í dag kom til okkar Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó hefur verið kallað heimili frjálsu leikhópanna og Snæbjörn sagði okkur frá fjölbreyttri dagskrá vetrarins í þættinum. Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar með gullmola af safni RÚV. Í dag kom hún með brot frá árinu 1963, þar sem Stefán Jónsson umsjónamaður fréttaauka fór í Skeiðarétt og ræddi við til dæmis fjallkóngana Magnús Árnason og Sigurgeir í Skáldabúðum, Guðmund Stefánsson gangnamann og Jónu Magnúsdóttur kvenfélagskonu auk þess sem við heyrðum kraftmikil tilsvor Páls Árnasonar sem var fjallkóngur í marga áratugi. Það er óhætt að segja að réttarstemningin skilar sér í þessu stórskemmtilega 63gja ára gamla innslagi. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Rán Tryggvadóttir, lögfræðingur og doktor í höfundarétti. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóð Emily Dickinson Berhöfða líf eftir Magnús Sigurðsson Things in Nature Merly Grow e. Yiyun Li Sálarljóð - úrval erlendra ljóða í þýðingu Atla Harðarsonar Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu e. Olga Tokarczuk sem Árni Óskarsson íslenskaði Handmaid’s Tale e. Margret Atwood Gunnlaðarsaga e. Svövu Jakobsdóttur Circe eftir Madeline Miller Tónlist í þættinum: Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur eða Guðmundur Björnsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður (Björgvin Þ. Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 14, 2026

Embed this episode

Ready to play

Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 14, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!