Leikskólamál: Ekki bara pláss, heimildir.is og Sigurlín Bjarney lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · May 4, 2026 · 52 MIN

Leikskólamál: Ekki bara pláss, heimildir.is og Sigurlín Bjarney lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Við sögðum í dag frá málþingi sem fór fram fyrir nokkru þar sem leikskólamál voru rædd og yfirskriftin var: Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi. Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknum mæli snúist um aðgengi, biðlista og rekstrarlegar áskoranir. Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ og Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent í menntunarfræðum ungra barna og formaður námsleiðar í leikskólakennarafræðum,komu í þáttinn í dag. Við litum svo við á Þjóðskjalasafni Íslands og hittum fyrir Helgu Lilju Bergmann sem sýndi okkur vef Þjóðskjalasafnsins þar sem hægt er að finna ótrúlega margt, s.s. á slóðinni www.heimildir.is þar sem finna má t.d. gamlar kirkjubækur. Safnið fær margar beiðnir í viku frá fólki sem vill finna heimildir en nú er t.d. búið að skanna inn allar gamlar kirkjubækur fram til 1960-70 svo hægt sé að leita í þeim uppá eigin spýtur. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum var svo Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari og rithöfundur. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigurlín talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Þúsund og einn hnífur og fleiri sögur frá Írak e. Hassan Blasim í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar Þríleikur (Things I don't want to know, The cost of living og Real estate) e. Deborah Levy The white road:Journey into an obsession e. Edmund de Waal Mountains of the mind: A history of fascination e. Robert MacFarlane Biblían, Þórarinn Eldjárn, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Tomas Tranströmer Tónlist í þættinum í dag: Hvar er tunglið / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson) Töfrar / Silfurtónar (Júlíus Heimir Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published May 4, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Leikskólamál: Ekki bara pláss, heimildir.is og Sigurlín Bjarney lesandi vikunnar

0:00 52:21

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on May 4, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!