EPISODE · Sep 7, 2026 · 53 MIN
Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar
from Mannlegi þátturinn
Við héldum áfram yfirferð Mannlega þáttarins yfir það hvað verður á fjölum leikhúsanna á nýhöfnum vetri. Í dag var það Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarsson sem fór yfir leikveturinn, þar verða m.a. tvö ný íslensk verk á Stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar breska leikritið Högg. Nýtt verk um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri, sem hefur sópað að sér verðlaunum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Laufey talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ítölsku skáldkonurnar Dacia Maraini og Elsa Morante Halldór Laxness, meira og minna allt hans höfundarverk Fjallkirkjan e. Gunnar Gunnarsson Astrid Lindgren og fíllinn Babar Við heyrðum svo í lokin ljóðið Mynd eftir Þorstein frá Harmi af diskinum Ljóðið ratar til sinna í upplestri skáldsins. Tónlist í þættinum í dag: Góða ferð heim / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Skák og mát / úr Ormstungu, Króli, Rán Ragnarsdóttir, Jakob van Oosterhout og Hallgrímur Ólafsson (Jóhannes Damian, texti Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson) Egils appelsín / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Embed this episode
Ready to play
Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.