EPISODE · Jun 10, 2024 · 50 MIN
Lesandinn Kristín Ásgeirs,Vinkill vikunnar og Bernskubrek í Kópvogi
from Mannlegi þátturinn
Bernskubrek í Kópavogi er yfirskrift dagskrár sem Marteinn Sigurgeirsson kennsluráðgjafi og kvikmyndagerðrmaður hefur boðið til núna á fimmtudaginn. Sögur og myndefni frá fyrri tímum í bæjarlífinu verða í sviðsljósinu og þar má nefna samskipti unglinga við herinn á stríðsárunum,fimm drengi í sjávarháska,Skiptistöðina,Pönkgangu um Hamraborg og svo baráttuna milli austurbæjar og vesturbæjar. Við ræðum við Martein hér á eftir. Vinkillinn frá Guðjóni Helga Ólafssyni, okkar manni í Flóanum,fjallar í dag að stærstu leyti um gamla gríska stríðshetju, nefnilega flotaforingjann Laskarinu Bouboulinu; fyrstu konuna sem hlaut aðmírálstign, árið 1825. Lesandi vikunnar er svo eigandi veitingastaðarins Yndisauka, Kristín Ásgeirsdóttir sem er mikill bókaormur. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur lesið og hvaða rithöfundar hafa haft áhrif á hana. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-10 Cactus Blossoms, The - Mississippi. Uppáhellingarnir, Sigríður Thorlacius - Kavatína Kristínar (feat. Sigríður Thorlacius).
Embed this episode
NOW PLAYING
Lesandinn Kristín Ásgeirs,Vinkill vikunnar og Bernskubrek í Kópvogi
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.