Lestrarörðugleikar á vinnumarkaði, ný mynd um Magnús Eiríksson og Sigríður Björg lesandinn episode artwork

EPISODE · Jan 12, 2026 · 50 MIN

Lestrarörðugleikar á vinnumarkaði, ný mynd um Magnús Eiríksson og Sigríður Björg lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Þar sem áreiðanlegar rannsóknir liggja fyrir, kemur í ljós að um það bil einn af hverjum fimm fullorðnum einstaklingum, upplifir námsörðugleika eins og lesblindu (dyslexia), reikniröskun (dyscalculia) eða áskoranir sem tengjast athygli, minni eða öðrum hugrænum ferlum. Þessir erfiðleikar hverfa ekki eftir að skólagöngu lýkur. Þeir hafa áhrif á daglegt líf fjölda fólks og hvernig því gengur í samfélaginu. Stafræn umbreyting, sjálfvirkni, og þörfin fyrir stöðuga endurmenntun setja vaxandi kröfur á alla starfsmenn. Í þessu umhverfi geta óþekktir námsörðugleikar orðið falin hindrun, hindrun sem hefur áhrif á atvinnu, vellíðan og jafnrétti. Guðmundur S. Johnsen er formaður félags lesblindra á Íslandi og hann kom í þáttinn í dag. Magnús Eiríksson tónlistarmaður er fallinn frá. Hann var auðvitað risi í íslensku tónlistarlífi sem samdi gríðarlegt magn af lögum og textum sem eru samofin íslensku þjóðarvitundinni. Öll lögin í þættinum í dag voru af þessu tilefni eftir Magnús og svo töluðum við við Ágúst Guðmundsson leikstjóra, en heimildarmynd um Magnús Eiríksson sem hann og Jón Þór Hannesson hafa verið að vinna í undanfarin tvö ár er á lokametrunum. Við fengum hann til að segja okkur aðeins frá Magnúsi og þessari heimildarmynd. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Sigríður Björg Tómasdóttir miðlunarstjóri Kópavogs. Við byrjuðum á því að forvitnast um hvað miðlunarstjóri gerir og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigríður Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Móðurást - Sólmánuður e. Kristín Ómars Huldukonan e. Fríða Isberg Fyrir vísindin e. Anna Rós Árnadóttir Um veturinn e. Karl Ove Knausgaard Clear e. Carys Davies Andrabækurnar eftir Pétur Gunnarsson Astrid Lindgren Tónlist í þættinum: Kóngur einn dag / Magnús Eiríksson og KK (Magnús Eiríksson) Þú gerir allt svo vel / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 12, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Lestrarörðugleikar á vinnumarkaði, ný mynd um Magnús Eiríksson og Sigríður Björg lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 12, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!