Líknardeildin 25 ára, vinkill og Heiðar Ingi lesandinn episode artwork

EPISODE · Apr 22, 2024 · 50 MIN

Líknardeildin 25 ára, vinkill og Heiðar Ingi lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Líknarmeðferð er hugtak sem margir tengja við yfirvofandi lífslok einstaklinga með illkynja sjúkdóma, þegar „ekkert er lengur hægt að gera“. Staðreyndin er að líknarmeðferð er mun meira en meðferð við lok lífs og margt hægt að gera til að bæta líðan og efla lífsgæði. Líknardeildin í Kópavogi sinnir einstaklingum 18 ára og eldri og fjölskyldum þeirra og þar starfar þverfaglegur hópur starfsfólks, meðal annars læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfi, sálfræðingur, prestur og sérhæft starfsfólk. Líknardeild Landspítala í Kópavogi átti 25 ára afmæli í síðustu viku og þær komu í þáttinn Ólöf Ásdís Ólafsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á líknardeildinni og Arna Dögg Einarsdóttir yfirlæknir og sögðu okkur frá deildinni. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og í dag fjallaði vinkillinn um vorkomuna og örnefnið Fagridalur fékk svolitla umfjöllun, ekki síst sá á Reykjanesskaga. Höfundur kvæðisins um Tuma sem fór á fætur við fyrsta hanagal og fleiri góðra, Freysteinn Gunnarsson, var fæddur og alinn upp í Flóanum; við heyrðum örlítið af uppvexti hans en héldum næst austur yfir Þjórsá og heimsóttum Bergstein Kristjánsson, samtíðarmann hans og þjóðháttasafnara, fengum eina þjóðsögu frá Jóni Þorkelssyni og enduðum á bjartsýni í lok vinkilsins. Og svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags bókaútgefenda. Á morgun er alþjóðlegur dagur bókarinnar, og af því tilefni sagði hann okkur frá félaginu og bókaútgáfu á Íslandi. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Heiðar Ingi talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar e. Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur. Gegnumtrekkur e. Einar Lövdahl. Sápufuglinn e. María Elísabetu Bragadóttur. Haugalygi e. Sigtrygg Baldursson Náttúrulögmálin e. Eirík Örn Norðdahl. og svo um höfundana Indriða Úlfsson, Diddu, Hallgrím Helgason, Tryggva Emilsson og Pedro Gunnlaug Garcia. Tónlist í þættinum Á sjó / Þorvaldur Halldórsson og hljómsveit Ingimars Eydal (erl.lag, texti Ólafur Ragnarsson) Cabayo / Les Baxter Perfect Day / Lou Reed (Lou Reed) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 22, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Líknardeildin 25 ára, vinkill og Heiðar Ingi lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 22, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!