Magga Stína föstudagsgestur og áfram um bíxímat episode artwork

EPISODE · Jan 19, 2024 · 50 MIN

Magga Stína föstudagsgestur og áfram um bíxímat

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söng- og tónlistarkonan Magga Stína, eða Margrét Kristín Blöndal. Hún hefur afrekað ýmislegt á sínum tónlistarferli, sungið með hljómsveitum eins og Sýrupolkasveitinni Hr.ingi.r, Risaeðlunni, Bikarmeisturunum, Jazzhljómsveit Konráðs Bé og Dvergunum sjö. Hún hefur einnig gefið út sólóplötur í eigin nafni og eina núna nýlega, upptaka af tónleikum hennar í Hörpu árið 2020 hvar hún söng lög eftir Megas. Magga Stína kom víða við í spjallinu við fórum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Þingholtunum og í Vesturbænum. Hún talaði um tónlistina, fiðlubogann, metnaðarleysi i markaðsmálum og nýju plötuna. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað. Við héldum áfram að tala um bíxímat, við fengum talsvert af ábendingum og skilaboðum frá hlustendum eftir spjall síðustu viku og nú fékk Guðrún tækifæri að lýsa sinni skoðun á bíxímat. Svo ræddum við nýtingu á afgöngum og heyrðum um lambalæri eftir palenstínskri uppskrift. Tónlist í þættinum í dag: Hope / Risaeðlan (Magga Stína og Risaeðlan) Naturally / Magga Stína (Magga Stína) Vinaminni / Magga Stína (Magnús Þór Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 19, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Magga Stína föstudagsgestur og áfram um bíxímat

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 19, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!